Fotbolti.net
28.09.26 - 17:02
Kári Snorrason

Arnar: Eins og við viljum þetta of mikið

Arnar ræddi við fjölmiðla á blaðamannafundi landsliðsins fyrr í dag.

Arnar ræddi við fjölmiðla á blaðamannafundi landsliðsins fyrr í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Ísland mætir Lúxemborg annað kvöld í öðrum leik liðsins í C-deild Þjóðadeildarinnar. Íslenska liðið gerði 1-1 jafntefli við Eistland í fyrsta leik riðilsins síðastliðinn laugardag.

Landsliðið ferðaðist til Lúxemborgar í gær og æfði á þjóðarleikvangi Lúxemborgar fyrr í dag. Að æfingu lokinni mætti landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson og Hákon Arnar Haraldsson varafyrirliði á blaðamannafund og sátu fyrir svörum.
Lestu um leikinn: Lúxemborg 0 - 0 Ísland
„Ég er mjög hrifinn af liði Lúxemborgar. Við höfum ekki unnið þá frá 1999, þar sem ég spilaði og skoraði meira að segja,“ sagði Arnar aðspurður um mótherjann og hélt áfram.

„Þeir eru á mikilli uppleið, búnir að gefa stórum þjóðum góða leiki. Þeir unnu sterkan og sanngjarnan útisigur gegn Búlgaríu um helgina. Þeir eru með skemmtilega leikmenn sem spila á háu stigi. Þetta verður erfiður leikur, eins og allir landsleikir eru.“

Hefur enginn áhuga á því
Arnar var spurður hvort að hann sæi fram á að gera miklar breytingar á liðinu frá leiknum gegn Eistlandi á laugardaginn. „Það verða einhverjar breytingar. Eðli málsins samkvæmt. Albert er ekki að spila og svo er þetta fjögurra leikja gluggi,“ sagði Arnar.

Því næst ræddi hann um góða pressu og augnablik Íslands gegn Eistlandi en sagði fólk ekki hafa áhuga á þeirri tölfræði.

„Fólk vill úrslit núna og fyrir mig að vera að tala um góð augnablik við höfum átt. Það hefur enginn áhuga á að hlusta á það. Það hefur enginn áhuga á að vita hvað markið okkar var frábært og ég skil það mjög vel. Ég ætla ekki að gaspra meira um það.

Nú snýst þetta um að ná góðum úrslitum á morgun. Þetta er ekki verra en það að ef við náum að vinna leikinn erum við væntanlega á toppi riðilsins og allir verða hamingjusamir,“
sagði Arnar.

Vilja þetta of mikið
Arnar sagði alla leikmenn klára í bátana, að Alberti undanskyldum. Aðspurður hvort að Gylfi Þór Sigurðsson gerði sterkt tilkall til þess að byrja á morgun sagði hann alla leikmenn liðsins gera það.

„Það eru allir hungraðir í að spila. Mér finnst eins og menn vilja þetta of mikið ef ég á að segja þetta eins og er. Mönnum langar svo mikið til þess að vinna. Það gerir það að verkum að við missum stundum hausinn örlítið í að velja augnablikin til þess að pressa,“ sagði Arnar og hélt áfram.

Það vantar ekki neistann í hjarta og sál, það vantar neista í réttar ákvarðanir og lykilsendingar. Það er þessi neisti sem við þurfum að ná upp og hann næst með því að hafa hausinn kláran,“ sagði Arnar.
Frá æfingu Íslands í dag.

Frá æfingu Íslands í dag.

Canon

Mynd: Kári Snorrason

„Það hefur enginn áhuga á að vita hvað markið okkar var frábært.“

„Það hefur enginn áhuga á að vita hvað markið okkar var frábært.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Eistland er lakasta lið riðilsins samkvæmt heimslista FIFA.

Eistland er lakasta lið riðilsins samkvæmt heimslista FIFA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Gylfi kom inn á sem varamaður gegn Eistum.

Gylfi kom inn á sem varamaður gegn Eistum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.