Fotbolti.net
15.07.15 - 18:30
Magnús Már Einarsson

Ali Al-Habsi til Reading (Staðfest)

Ali Al-Habsi til Reading (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ali Al-Habsi hefur gengið til liðs við Reading í ensku Championship deildinni.

Al Habsi er 33 ára gamall markvörður en hann hefur undanfarin fimm tímabil verið á mála hjá Wigan.

Al Habsi, sem er frá Óman, varð samningslaus í sumar og hann hefur nú gengið til liðs við Reading.
Í öðrum fréttum af Reading má nefna að hinn tvítugi Niall Keown hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við félagið.

Keown á tvo leiki að baki með aðalliði Reading en hann er sonur Martin Keown fyrrum varnarmanns Arsenal.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.