Fotbolti.net
15.07.15 - 17:00
Magnús Már Einarsson

Alvaro Montejo Calleja aftur í Huginn (Staðfest)

Alvaro Montejo Calleja.

Alvaro Montejo Calleja.

Canon

Mynd: Úr einkasafni

Spænski sóknarmaðurinn Alvaro Montejo Calleja hefur gengið til liðs við Huginn á nýjan leik.

Alvaro skoraði 13 mörk í 19 leikjum í 2. deildinni í fyrra og var valinn í lið ársins.
Alvaro, sem er mikill stuðningsmaður Atletico Madrid, er nú mættur aftur á Seyðisfjörð.

Hann gæti spilað með Huginn á föstudag þegar liðið fær Ægi í heimsókn í 2. deildinni.

Huginn er með 23 stig í 3. sætinu í 2. deildinni eftir fyrri umferðina en liðið er einungis stigi á eftir Leikni Fáskrúðsfirði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.