Fotbolti.net
15.07.15 - 20:00
Arnar Geir Halldórsson

Freddy Adu semur við sitt þrettánda félag (Staðfest)

Adu er kominn heim til Bandaríkjanna

Adu er kominn heim til Bandaríkjanna

Canon

Mynd: Getty Images

Freddy Adu er nafn sem flestir knattspyrnuáhugamenn kannast við enda var hann aðeins 13 ára gamall þegar hann skaust fram á sjónarsviðið.
Nú þrettán árum síðar er hann að ganga til liðs við sitt þrettánda félag á atvinnumannaferlinum.

Ferill Adu hefur ekki náð þeim hæðum sem búist var við á sínum tíma en hann er nú að ganga til liðs við bandaríska B-deildarliðið Tampa Bay Rowdies frá finnska C-deildarliðinu Kufu-98.

Adu var eins og áður segir 13 ára gamall þegar hann skaust fram á sjónarsviðið þegar hann gerði stóran auglýsingasamning við Nike. Ári síðar lék hann sinn fyrsta leik í MLS deildinni og 16 ára gamall lék hann sinn fyrsta landsleik fyrir Bandaríkin.

Meðal félaga sem Adu hefur leikið fyrir eru Benfica og Monaco en hann hefur nú gefist upp á evrópuboltanum, í bili hið minnsta.

Þjálfari Tampa Bay Rowdies, Thomas Rongen, þekkir vel til Adu eftir að hafa þjálfað hann í yngri landsliðum Bandaríkjanna. Rongen kveðst spenntur yfir komu Adu.

„Freddy og ég höfum alltaf átt í góðu sambandi. Hann er einstakur leikmaður, mjög hæfileikaríkur og getur gert gæfumuninn\".

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.