15.07.15 - 21:30
Arnar Geir Halldórsson
Giovani Dos Santos til LA Galaxy (Staðfest)

Nýjasti liðsmaður LA Galaxy

Mynd: Getty Images

Nýjasti liðsmaður LA Galaxy

Mynd: Getty Images
Steven Gerrard og félagar í LA Galaxy hafa nælt sér í góðan liðsstyrk þar sem mexíkóski landsliðsmaðurinn Giovani Dos Santos er genginn til liðs við félagið.
Þessi 26 ára gamli sóknarsinnaði miðjumaður kemur til LA Galaxy frá Villarreal á Spáni en Dos Santos kom við sögu í 26 deildarleikjum hjá Villarreal á síðustu leiktíð.
Dos Santos þótti mikið efni á sínum tíma en hann var rúmlega 18 ára gamall þegar hann lék sinn fyrsta leik fyrir aðallið Barcelona. Hann hefur farið víða á ferli sínum og meðal annars leikið með Tottenham, Galatasaray og Ipswich.
„Giovani er sérstakur leikmaður. Hann hefur reynslu og þekkir það að keppa í hæsta gæðaflokki. Við trúum því að hann muni halda áfram að bæta sig\".
„Við erum ánægðir að fá hann í okkar hóp og erum sannfærðir um að hann geti verið í lykilhlutverki hjá okkur í komandi verkefnum\", sagði Bruce Arena, þjálfari LA Galaxy.
Gerrard lék sinn fyrsta leik fyrir LA Galaxy nýverið en Dos Santos mun byrja að spila með liðinu í ágúst.

Heimild: LA Galaxy