15.07.15 - 07:37
Elvar Geir Magnússon
Ingvar Jónsson til Sandnes Ulf (Staðfest)

Ingvar Jónsson mun hjálpa Sandnes Ulf að berjast um sæti í úrvalsdeildinni,

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingvar Jónsson er genginn í raðir norska B-deildarliðsins Sandnes Ulf á láni frá Start út tímabilið. Frá þessu er greint á heimasíðu Sandnes Ulf.
Ingvar mun því verja mark Sandnes Ulf sem seldi Hannes Þór Halldórsson til hollenska úrvalsdeildarfélagsins NEC Nijmegen á dögunum.
„Við erum gríðarlega ánægð með hvernig þessi mál leystust og hlakkar til að fá Ingvar til okkar í vikunni. Hann mun vera tilbúinn í næsta leik sem er gegn Bryne 26. júlí,\" segir á heimasíðu Sandnes Ulf.
„Sandnes Ulf þakkar Start fyrir samvinnuna í þessu máli. Þetta er samkomulag sem bæði félög græða á. Sandnes Ulf fær góðan markvörð og Start græðir á að þeirra leikmaður fái spiltíma í alvöru leikjum.\"
Ingvar vermdi varamannabekkinn hjá Start og fór ekki leynt með áhuga á að fara til Sandnes Ulf þegar félagið sýndi honum áhuga. Ingvar er í baráttu um að vera meðal þriggja markvarða íslenska landsliðshópsins en hann var ekki valinn í síðasta hóp.
Hann var valinn leikmaður ársins í Pepsi-deildinni í fyrra þegar hann varði mark Stjörnunnar sem varð Íslandsmeistari.
Sandnes Ulf er í harðri baráttu um að komast upp í norsku úrvalsdeildina í ný, Eftir fjóra sigurleiki í röð er liðið í öðru sæti B-deildarinnar.