15.07.15 - 21:38
Arnar Geir Halldórsson
Jordy Clasie til Southampton (Staðfest)

Jordy Clasie

Mynd: Getty Images

Jordy Clasie

Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarliðið Southampton hefur fest kaup á hollenska landsliðsmanninum Jordy Clasie.
Clasie kemur til Southampton frá Feyenoord og gerir fimm ára samning við Dýrlingana.
Þessi 24 ára gamli miðjumaður á 11 landsleiki að baki fyrir Holland en hann þekkir vel til Ronald Koeman, stjóra Southampton.
Koeman gaf honum fyrst tækifæri hjá Feyenoord þegar Clasie var 20 ára gamall.
„Mér líður vel að vera kominn til Southampton. Þetta er flottur klúbbur og ég er ánægður að vera hér. Þetta er stórt félag í deild sem ég tel vera þá stærstu\", sagði Clasie við undirskriftina.
„Það gerir mikið fyrir mig að hafa Ronald (Koeman) hérna og það hafði mikið að segja. En jafnvel þó hann væri ekki hér hefði ég ekki getað hafnað þessu félagi\".
„Ég hef horft á marga leiki með Southampton og hreifst af spilamennskunni. Ég vona að ég muni eiga mörg góð augnablik og góð ár hérna\", sagði þessi nýjasti liðsmaður Southampton.

Heimild: Southampton