Fotbolti.net
15.07.15 - 10:30
Elvar Geir Magnússon

Moha El Ouriachi til Stoke (Staðfest)

Moha El Ouriachi er fæddur í Marokkó en hér er hann í leik með unglingaliði Barcelona.

Moha El Ouriachi er fæddur í Marokkó en hér er hann í leik með unglingaliði Barcelona.

Canon

Mynd: Getty Images

Moha El Ouriachi er kominn í raðir Stoke City frá Barcelona. Hann er kominn til Singapúr þar sem Stoke býr sig undir komandi tímabil.

Þessi 19 ára strákur hafnaði samningstilboði frá Börsungum en hjá Stoke hittir hann tvo fyrrum leikmenn spænska stórliðsins, Bojan og Marc Muniesa.
„Moha er spenntur fyrir þessu skrefi. Hann hefur séð þróun mála hjá Bojan og Marc og vill fara sömi leið,\" segir Tony Scholes, framkvæmdastjóri hjá Stoke.

Stoke sem hafnaði í níunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar síðasta tímabil hefur nú bætt við sig sjö leikmönnum.

Sóknarmaðurinn Joselu, markverðirnir Shay Given og Jakob Haugaard, varnarmennirnir Glen Johnson og Philipp Wollscheid auk miðjumannsins Marco van Ginkel höfðu áður gengið í raðir félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.