Erkifjendur berjast um Palhinha

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Portúgölsku stórveldin Benfica og Sporting eru að berjast um landsliðsmanninn Joao Palhinha sem er á sölulista hjá FC Bayern.

TENGT EFNI
Palhinha kveður Tottenham - „Hefur haft djúpstæð áhrif á lífið"
Marco Silva, nýráðinn þjálfari Benfica, hefur miklar mætur á Palhinha eftir að hafa þjálfað hann hjá Fulham í ensku úrvalsdeildinni.
Palhinha hóf ferilinn hjá Sporting áður en hann var keyptur í enska boltann og hefur síðan þá spilað fyrir Bayern og Tottenham, auk Fulham.
Palhinha er uppalinn í Lissabon og verður áhugavert að fylgjast með hvort hann skipti til uppeldisfélagsins eða erkifjendanna, þar sem hann fengi tækifæri til að spila aftur undir stjórn Silva.
Miðjumaðurinn sterki er 31 árs gamall og með tvö ár eftir af samningi sínum við Bayern, en hann vill komast til nýs félags þar sem hann fær meiri spiltíma. Hann lék á láni hjá Tottenham á síðustu leiktíð en félagið ætlar að snúa sér að öðrum skotmörkum í sumar.
Palhinha á 37 landsleiki að baki fyrir Portúgal en var ekki valinn í hópinn sem fór á HM í sumar.

Breytingar í kortunum hjá Portúgal - Felix fær nýtt hlutverk

Mynd: EPA