Fotbolti.net
15.07.26 - 09:30
Víðir Sigurðsson

Næstyngstur í sögunni hjá KR

Fannar Heimisson lék lokamínúturnar með KR gegn ÍBV.

Fannar Heimisson lék lokamínúturnar með KR gegn ÍBV.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fannar Heimisson er kominn í annað til þriðja sætið yfir yngstu leikmenn KR í efstu deild karla eftir að hafa komið inn á sem varamaður í leik liðsins gegn ÍBV á sunnudagskvöldið.

Fannar var þá 15 ára og 96 daga gamall, nákvæmlega jafngamall upp á dag og Jón Arnar Sigurðsson var þegar hann lék í fyrsta sinn með KR í deildinni árið 2022.
Félagsmetið í Vesturbænum á hins vegar Alexander Rafn Pálmason sem lék fyrst með KR 14 ára og 147 daga gamall árið 2024, og það er jafnframt aldursmetið í Bestu deild karla.

Alexander fór til Nordsjælland í Danmörku um síðustu mánaðamót og frágengið er að Fannar fari til sama félags næsta vor þegar hann verður 16 ára.

Þessi frétt er hluti af grein sem birtist 14. júlí á áskriftarvef Fótbolti.net. Umfjöllunin er í heild sinni hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Hægt er að nálgast allar upplýsingar um áskriftarleiðina hér.

Víðir Sig um 14. umferð: Hallgrímur fékk góða gjöf - óvæntur markaskorari
TENGT EFNI

Víðir Sig um 14. umferð: Hallgrímur fékk góða gjöf - óvæntur markaskorari



Þeir Alexander, Fannar og Jón Arnar eru nú þrír af ellefu yngstu leikmönnum sögunnar sem hafa spilað í efstu deild karla á Íslandi
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.