Víkingur spilar að minnsta kosti sex Evrópuleiki til viðbótar - Spila í deildinni um Versló

Myndir úr leiknum í gær

Mynd: Víkingur/Hörður Ágústsson

Mynd: Víkingur/Hörður Ágústsson

Mynd: Víkingur/Hörður Ágústsson

Mynd: Víkingur/Hörður Ágústsson

Mynd: Víkingur/Hörður Ágústsson

Myndir úr leiknum í gær

Mynd: Víkingur/Hörður Ágústsson
Víkingur vann tveggja leikja einvígi á móti ungversku meisturunum í Györ í 1. umferð Meistaradeildarinnar. Lokatölur í einvíginu urðu 3-2 Víkingi í vil eftir 2-2 jafntefli i Ungverjalandi í gær. Víkingur fer því áfram í 2. umferð forkeppninnar í Meistaradeildinni í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Víkingar eru því öruggir með að minnsta kosti sex Evrópuleiki til viðbótar og öruggir með sæti í umspili fyrir Sambandsdeildina. Með því að sigra Györ bættist ein fallhlíf til viðbótar á Evrópuleiðinni.
Víkingur mætir ísraelsku meisturunum í Hapoel Be'er Sheva í 2. umferð forkeppninnar í Meistaradeildinni. Ef Íslandsmeistararnir sigra það einvígi eru þeir öruggir inn í Sambandsdeildina.
Ef einvígið gegn Hapoel tapast þá falla Víkingar niður í 3. umferð forkeppninnar í Evrópudeildinni og ef það einvígi tapast fara þeir í umspilsumferðina um sæti í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar.

TENGT EFNI
Sölvi með gæsahúð: Svo stoltur sem þjálfari
Einvígið gegn Hapoel hefst í næstu viku og byrjar Víkingur á heimavelli næsta þriðjudag. Útileikurinn verður svo spilaður viku síðar í Szombathely í Ungverjalandi vegna ástandsins í Ísrael.
Ljóst er að færa þarf tvo deildarleiki Víkings vegna árangurs liðsins í Evrópu. Leik liðsins gegn Keflavík hefur verið flýtt um tvo sólarhringa og verður föstudaginn 24. júlí á Víkingsvelli, áætlað er að sá leikur hefjist klukkan 20:00.
Næsti leikur á eftir, gegn ÍA á útivelli, er skráður þriðjudaginn 4. ágúst en ljóst er þeim leik verður einnig flýtt og mun fara fram um Verslunarmannahelgina. Þetta staðfestir Birkir Sveinsson, mótastjóri KSÍ, í samtali við Fótbolta.net.
Kvennalið Víkings á heimaleik gegn Fram mánudaginn 20. júlí og eru allar líkur á því að sá leikur verður færður því völlurinn verður að vera laus daginn fyrir Evrópuleik.
Uppfært 11:30 - Leik Víkings og Fram í Bestu deild kvenna hefur verið flýtt um tæpan sólarhring. Hann mun fara fram sunnudaginn 19. júlí og hefst 14:00.
Næstu leikir karlaliðs Víkings
laugardagur 18. júlí
Besta karla
16:00 Þór-Víkingur R. (VÍS völlurinn)
þriðjudagur 21. júlí
Forkeppni Meistaradeildarinnar
Víkingur R. - Hapoel (Víkingsvöllur)
föstudagur 24. júlí
Besta karla
20:00 Víkingur R.-Keflavík (Víkingsvöllur)
þriðjudagur 28. júlí
Forkeppni Meistaradeildarinnar
Hapoel - Víkingur R. (Ungverjaland)
1. eða 2. ágúst
Besta karla
ÍA-Víkingur R. (ELKEM völlurinn)
4.-6. ágúst
Evrópuleikur í 3. umferð - Fyrri leikur