Fotbolti.net
15.07.26 - 10:51
Kári Snorrason

Maður dagsins á HM - Luis de la hver?

De la Fuente er maður dagsins.

De la Fuente er maður dagsins.

Canon

Mynd: EPA

Leikmaður dagsins
Luis de la Fuente og lærisveinar hans unnu sannfærandi 2-0 sigur á Frökkum í undanúrslitum heimsmeistaramótsins. Frakkar voru sigurstranglegri komandi inn í leikinn en þeir spænsku voru með öll völd á vellinum.

Spænski þjálfarinn hefur smíðað frábært lið á þeim fjórum árum sem hann hefur verið við stjórnvölinn hjá spænska liðinu.

Miðlar úti í heimi kalla leik gærkvöldsins sigur liðsheildarinnar gegn stórstjörnunum. Lítið fór fyrir þeim Kylian Mbappé, Ousmane Dembéle og Michael Olise sem virtust nær óstöðvandi fyrir leikinn.
De la hver?
Eftir mikil vonbrigði á HM í Katar 2022, þar sem Spánn tapaði í 16-liða úrslitum gegn Marokkó, tók de la Fuente við liðinu af Luis Enrique í desember 2022.

Í umfjöllun BBC segir að á þeim tíma hafi margir kallað hann Luis de la hver? Hann var óþekkt nafn sem hafði stýrt U21 liði Spánar í fjögur ár áður en hann tók við aðalliðinu. Þar áður hafði hann verið með U19-liðið.

De la Fuente, sem er 65 ára, spilaði með Athletic Bilbao, Sevilla og Alaves á sínum leikmannaferli. Sem þjálfari á hann ekki mikinn félagsliðaferil að baki; stærst var það þegar hann stýrði Alaves í þrjá mánuði fyrir tólf árum síðan. En síðan hann tók við spænska liðinu hefur leiðin aðeins legið upp á við.

Liðið varð Evrópumeistari tæpum tveimur árum síðar og er Spánn ósigrað í síðustu 37 leikjum. Þar með jafna þeir spænsku met Ítala yfir flesta taplausa leiki í röð í landsliðsfótbolta og geta þeir bætt metið skyldu þeir sigra í úrslitum næstkomandi sunnudag.

Sama uppskrift
Með sigri gærkvöldsins tryggði liðið sér sæti í úrslitum HM í annað sinn í sögunni. Spánverjar komust í fyrsta sinn í úrslit árið 2010 og lögðu þeir þar Hollendinga að velli, 1-0, eftir framlengdan leik.

Mótið byrjaði þó ekki á neinni flugeldasýningu frá Evrópumeisturunum. Í fyrsta leik gerði liðið óvænt markalaust jafntefli gegn Grænhöfðaeyjum. Þeir þurftu sigurmark á 91. mínútu til að slá Portúgal út í 16-liða úrslitum og sigurmark á 88. mínútu til að sigra Belgíu í átta liða úrslitum.

Á blaðamannafundi eftir sigur gærkvöldsins sagði De la Fuente liðið hafa endurheimt anda spænska liðsins sem vann fyrir 16 árum. Þar byrjaði liðið sömuleiðis hægt, tapaði fyrsta leik 1-0 gegn Sviss.
Pedro Porro skoraði seinna mark Spánar.

Pedro Porro skoraði seinna mark Spánar.

Canon

Mynd: EPA

Mæta annað hvort Englandi eða Argentínu í úrslitaleik á sunnudag.

Mæta annað hvort Englandi eða Argentínu í úrslitaleik á sunnudag.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.