Fotbolti.net
15.08.26 - 23:00
Kári Snorrason

Sjáðu fyrsta mark Rogers fyrir Chelsea og ágætis færi Orra

Skoraði í sínum fyrsta leik fyrir Chelsea.

Skoraði í sínum fyrsta leik fyrir Chelsea.

Canon

Mynd: Chelsea

Chelsea tók í dag á móti Real Sociedad í æfingaleik á Stamford Bridge. Leikurinn var sá fyrsti sem Xabi Alonso stýrði á Brúnni og því vel við hæfi að mótherjinn skyldi vera uppeldisfélag hans, Real Sociedad.

Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson var í byrjunarliði Sociedad og fékk hann ágætt færi í fyrri hálfleik.

Chelsea hafði að lokum betur, lokatölur 3-1. Morgan Rogers lék sinn fyrsta leik fyrir félagið og kom heimamönnum yfir snemma leiks. Joao Pedro skoraði síðan tvívegis og tryggði Chelsea sigurinn.

Hægt er að sjá allt það helsta úr leiknum hér að neðan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.