Fotbolti.net
15.08.26 - 21:59
Kári Snorrason
Franski boltinn

Godts til PSG á 45 milljónir evra (Staðfest)

Godts til PSG á 45 milljónir evra (Staðfest)
Canon

Mynd: PSG

PSG hefur fest kaup á belgíska landsliðsmanninum Mika Godts frá Ajax. Hann skrifar undir fimm ára samning við Evrópumeistarana.

Kaupverðið nemur 45 milljónum evra en getur hækkað um tíu milljónir evra til viðbótar vegna árangurstengdra bónusgreiðslna.

Godts er 21 árs gamall vinstri kantmaður og á hann tvo A-landsleiki að baki fyrir Belgíu. Hann var þó ekki valinn í lokahópinn fyrir HM í sumar.
PSG ætlar svo sannarlega að auka breiddina á vængjunum en félagið tilkynnti fyrr í dag jafnframt um komu Ferran Torres frá Barcelona.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.