Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 15. september 2020 10:41
Magnús Már Einarsson
Grealish framlengir við Aston Villa (Staðfest)
Mynd: Getty Images
jack Grealish, fyrirliði Aston Villa, hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við félagið.

Hinn 25 ára gamli Grealish er nú samningsbundinn Aston Villa til ársins 2025.

Grealish hefur verið orðaður við Manchester United en nú lítur út fyrir að hann fari ekki fet.

„Það eru spennandi tímar framundan og ég er mjög ánægður með að vera hluti af þeim," sagði Grealish.

„Eigendurnir hafa látið það mjög skýrt í ljós hversu metnaðarfullir þeir eru og hvernig þeir vilja byggja Aston Villa."
Athugasemdir
banner
banner
banner