16.10.26 - 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Mourinho: Hvorki saklaust né sanngjarnt

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
José Mourinho þjálfari Real Madrid fór víðan völl eftir magnaðan endurkomusigur á Ólympíuleikvanginum í Róm síðastliðið miðvikudagskvöld.
Real var 3-1 undir en tókst að sigra með þremur mörkum á lokakafla leiksins eftir að Mourinho hafði skipt mikið af sóknarmönnum inn af bekknum.
„Ef liðið sem endaði leikinn í kvöld hefði byrjað hann... þá hefðum við tapað 5-0," sagði Mourinho hress að leikslokum. „Þetta virkaði bara á lokamínútunum út af stöðunni sem var komin upp í leiknum. Þetta myndi aldrei ganga upp í 90 mínútur."
Mourinho nýtti þá tækifærið til að gagnrýna leikjaniðurröðunina í La Liga. Mourinho segir hana vera ósanngjarna og telur að það sé viljandi gert. Deilur á milli Real Madrid og Javier Tebas forseta La Liga hafa ekki farið framhjá neinum á undanförnum árum.
Real Madrid heimsækir Racing Santander 1. nóvember og flýgur svo til Grikklands til að spila útileik við AEK í Aþenu 4. nóvember.
Þremur sólarhringum eftir það eiga Madrídingar loks útileik við Valencia laugardaginn 7. nóvember og svo tekur síðasta landsleikjahlé ársins við.
„Við spilum í Aþenu á miðvikudegi og lendum aftur í Madríd klukkan 5 næsta morgun. Svo eigum við að spila í Valencia á laugardegi. Í mínum augum er þetta hvorki saklaust né sanngjarnt."
Atlético Madrid og Barcelona mæta til leiks í Meistaradeildinni þriðjudaginn 3. nóvember áður en þau eigast við í spænsku deildinni sunnudaginn 8. nóvember, fimm dögum síðar. Þetta er Mourinho mjög ósáttur með.
Næsti leikur Real Madrid er á heimavelli gegn Sevilla á sunnudagskvöldið.

La Liga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Barcelona | 8 | +27 | 24 |
| 2 | Atletico Madrid | 8 | +10 | 19 |
| 3 | Betis | 8 | +5 | 19 |
| 4 | Real Madrid | 8 | +11 | 18 |
| 5 | Sevilla | 8 | +1 | 14 |
| 6 | Real Sociedad | 8 | -3 | 13 |
| 7 | Alaves | 8 | +4 | 11 |
| 8 | Deportivo | 9 | +1 | 11 |
| 9 | Celta | 8 | +2 | 8 |
| 10 | Athletic | 6 | +1 | 8 |
| 11 | Villarreal | 8 | 0 | 8 |
| 12 | Espanyol | 8 | 0 | 8 |
| 13 | Vallecano | 7 | -5 | 8 |
| 14 | Getafe | 8 | -6 | 8 |
| 15 | Racing Santander | 8 | -10 | 8 |
| 16 | Osasuna | 8 | -10 | 8 |
| 17 | Levante | 8 | -4 | 7 |
| 18 | Elche | 8 | -6 | 6 |
| 19 | Valencia | 8 | -9 | 5 |
| 20 | Malaga | 8 | -9 | 4 |