Fotbolti.net
16.10.26 - 22:20
Ívan Guðjón Baldursson

Addi og Njörður hætta með Árborg (Staðfest)

Addi og Njörður hætta með Árborg (Staðfest)
Canon

Mynd: Sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Árborg hefur staðfest að Adólf Ingvi Bragason og Njörður Steinarsson séu hættir með félagið eftir eitt ár við stjórnvölinn.
Árborg endaði í þriðja sæti 4. deildarinnar annað árið í röð og mistókst að komast upp um deild. Þetta sumarið náði Árborg sér í 36 stig úr 18 umferðum og endaði átta stigum á eftir nágrönnum sínum í Hamri sem fara upp um deild.

„Við viljum þakka þeim kærlega fyrir frábært samstarf síðastliðið ár. Þeir hafa lagt gríðarlega mikið af mörkum til félagsins, og mörg mikilvæg skref í þróun þess hefðu ekki átt sér stað án þeirra," segir í tilkynningu frá Árborg. „Í okkar augum eru þeir og verða alltaf kóngar."

Addi og Njörður eru goðsagnir hjá Árborg eftir að hafa gert magnaða hluti hjá félaginu fyrir 16 árum síðan. Addi stýrði liðinu upp í 2. deild árið 2010 með Njörð sem lykilmann í liðinu.


Addi og Njörður hætta með Árborg (Staðfest)
Canon

Mynd: Guðmundur Karl

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.