Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   þri 15. september 2020 08:30
Aksentije Milisic
Lampard hringdi í Pulisic og bauð honum treyju númer 10
Mynd: Getty Images
Frank Lampard, stjóri Chelsea, er mjög ánægður með fyrsta tímabil Christian Pulisic hjá félaginu og segir að hann verðskuldi að fá treyju númer 10.

Þessi bandaríski kantmaður, sem lék í treyju númer 22 á síðasta tímabili, er kominn í treyjuna góðu sem Eden Hazard og Willian spiluðu í hjá Chelsea.

Eftir að Willian yfirgaf Chelsea og gekk í raðir Arsenal í sumar þá hefur Lampard sagt frá því að eina rétta í stöðunni væri að gefa Pulisic þessa treyju.

„Ég vildi að hann fengi þessa treyju. Hann á hana skilið og honum langaði í hana," sagði Frank.

„Pulisic kom fyrir síðasta tímabil og þá tók Willian tíuna sem var rétt ákvörðun, hann er reynslumikill leikmaður. Þegar treyjan varð hins vegar laus þá var það rétta í stöðuna að gefa Pulisic hana."

Chelsea vann Brighton í úrvalsdeildinni í gær með þremur mörkum gegn einu.
Athugasemdir
banner
banner
banner