17.09.26 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Messi fagnaði titli og Beckham telur að hann eigi skilið að fá gullboltann

Á Messi skilið að vinna gullboltann?

Mynd: EPA

Á Messi skilið að vinna gullboltann?

Mynd: EPA
Lionel Messi átti frábæran leik þegar Inter Miami fagnaði titli i nótt.
Inter Miami mætti mexíkóska liðinu Cruz Azul í Campeones Cup. Um er að ræða leik milli bandarísku og mexíkósku meistarana.

Messi kom Inter Miami yfir með skallamarki eftir sendingu frá Luis Suarez. Þetta var 100. mark Messi fyrir liðið en hann fór til bandaríska liðsins frá PSG árið 2023.
Casemiro innsiglaði síðan 2-0 sigur liðsins eftir undirbúning Messi.
David Beckham, meðeigandi Inter Miami, telur að Messi ætti að vinna Ballon d'Or gullboltann sem besti fótboltamaður heims.
„Þegar maður horfir á hann að gera svona hluti, eftir að hafa verið svona góður á HM. Það er enginn 39 ára sem hefur gert þetta á þessu getustigi. Hann á skilið að koma til greina í Ballon d'Or. Að mínu mati ætti hann að vinna gullboltann," segir Beckham.

Messi and @InterMiamiCF lift the @CampeonesCup ???? pic.twitter.com/mygNDWA3Gb
— Major League Soccer (@MLS) September 17, 2026