Fotbolti.net
14.09.26 - 23:00
Ívan Guðjón Baldursson

Aubameyang kominn á lista með Zlatan og Puskás

Aubameyang kominn á lista með Zlatan og Puskás
Canon

Mynd: EPA

Pierre-Emerick Aubameyang er búinn að skrifa sig í sögubækur efstu deildar spænska boltans eftir að hann skoraði í jafntefli hjá Deportivo La Coruna um helgina.
Aubameyang varð með því fyrsti leikmaðurinn til að skora í fimm fyrstu leikjum deildartímabilsins í La Liga síðan Zlatan Ibrahimovic gerði það sem leikmaður Barcelona fyrir 17 árum.

Aubameyang er á sama tíma aðeins tíundi leikmaðurinn í sögu deildarinnar til að afreka þetta, eftir Manuel Vilanova, Prudencio Sanchez, Guillermo Campanal, Manuel Pahino (tvisvar), Ferenc Puskás, Amancio Amaro, Enrique Castro og Walter Pandiani.

Þetta er magnað afrek hjá Aubameyang, sem er 37 ára gamall.

Hann skoraði 11 mörk í 18 deildarleikjum þegar hann var hjá Barcelona 2022.

Spánn: Aubameyang skoraði í fimmta leiknum í röð - Orri kom inn á
TENGT EFNI

Spánn: Aubameyang skoraði í fimmta leiknum í röð - Orri kom inn á

Aubameyang kominn á lista með Zlatan og Puskás
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.