Framkvæmdastjóri KSÍ: Helgin frábær í alla staði en hlutir sem við hefðum mátt gera betur
Þarf að hækka verðlaunaféð?

Það tók langan tíma fyrir fólk að komast í stúkuna á Laugardalsvelli.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Sigurliðið fær eina milljón króna.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eysteinn Pétur er framkvæmdastjóri KSÍ.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tapliðið fær hálfa milljón króna.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Bikarmeistararnir í karlaflokki fara í forkeppni Evrópudeildarinnar á næsta tímabili.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stemning í stúkunni.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Það tók langan tíma fyrir fólk að komast í stúkuna á Laugardalsvelli.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fótbolti.net ræddi við Eystein Pétur Lárusson, framkvæmdastjóra KSÍ, um hvað hefði farið úrskeiðis á föstudagskvöldið.

Víðir Sig: Aðsóknin í 8. sæti. Bikarmeistari í þriðja sinn. Hver var eldri?
„Vonandi skapaði þetta ekki of mikil vandamál og við lærum af þessu. Að öðru leyti gekk skipulagið frábærlega. Þessi ákvörðun að fresta um tíu mínútur er hluti af okkar viðbragðsáætlun og til þess viðbragðs var gripið."
„Allir voru mættir inn um innganginn fimm mínútur í áætlað upphafsflaut, en við tókum ákvörðun um að seinka svo fólk gæti klárað að koma sér fyrir í sætum af því það var ekki selt í númerið sæti á þessum leikjum, fólk þurfti að finna sér sín sæti. Ég held að allir hafi komist í sín sæti fyrir þjóðsöng og upphafsflaut og það er bara vel."
„Þetta var kannski aðallega leiðinlegt fyrir leikmennina sem voru búnir að gíra sig fyrir upphafsflaut kl. 19:00. Þetta er hins vegar alveg þekkt annars staðar að brugðist sé við töfum með smá seinkun á leiktíma þó það sé ekki óskastaða. Við lærum af þessu og reynum að gera betur næst þegar svona stór viðburður er," segir Eysteinn.
Opnað var inn í stúkuna klukkutíma fyrir leik og KSÍ gæti endurskoðað þá ákvörðun varðandi komandi viðburði og næstu ár.
Eysteinn segir að aðsóknin á leikinn hafi verið aðalatriðið varðandi þann tíma sem tók að hleypa áhorfendum inn.
„Það var gott veður og á báða leiki, karla- og kvenna og fólk að kaupa sig inn á völlinn alveg fram að leik. Við hefðum kannski átt að opna fyrr inn í stúkuna. Þetta snerist ekki um falsmiða eða neitt slíkt, en það er ákveðið ferli hjá okkur á leikjum, leitað í bakpokum til dæmis. Það hefði kannski mátt skoða skipulagið í því. Þetta voru tíu mínútur, allir komust inn og allir sáu leikinn. Þetta fer í reynslubankann, við lærum af þessu og gerum betur."
Það var góð mæting á báða leikina. Mætingin á leik Grindavíkur/Njarðvíkur og Þróttar var sú fjórða mesta í sögunni og á leik Aftureldingar og Breiðabliks var aðsóknin sú næst mesta frá aldamótum.
„Það var góð mæting á báða leiki og báðir leikir virkilega flottir. Öll stuðningsmannaliðin algjörlega til fyrirmyndar í öllu. Það er fúlt að annað liðið þarf að lúta í lægra haldi en stemningin, veðrið og gleðin - leikmenn fengu þau verðlaun að fá að spila á glæsilegum Laugardalsvelli. Völlurinn leit frábærlega út og helgin var frábær í alla staði. Það eru hlutir sem mátti gera betur en heilt yfir erum við himinlifandi. Vonandi verður næsta helgi jafngóð," sagði Eysteinn en þá fer fram úrslitaleikurinn í Lengjudeildarumspilinu og úrslitaleikur Gatorade-bikars Fótbolta.net.
„MS gerir gerir þetta líka rosalega vel með alla umgjörð. Styrktaraðilinn leggur mikið í umgjörð á leiknum. Það ber að hrósa fyrir það."
Þarf að hækka verðlaunaféð?
Talandi um styrktaraðilann. Það spratt upp umræða um verðlaunaféð fyrir sigur í bikarnum. Sigurliðin fá eina milljón króna og silfurliðið fær hálfa milljón króna. Í karlaflokki eru verðlaunin einnig verðmætt Evrópusæti, en þannig er það ekki í kvennaflokki.
„Auðvitað eru aðalverðlaunin að vinna titil og skrá sig á spjöld sögunnar. Þetta er auðvitað eitthvað sem má skoða. Við tökum öllum góðum ábendingum til okkar, ekki spurning. Við vitum að fjármagnið er af skornum skammti, það þarf að hugsa vel hversu mikið á að fara í umgjörð, verðlaunafé og annað slíkt. Það er eitthvað sem þarf að ræða," segir Eysteinn.

Sigurliðið fær eina milljón króna.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eysteinn Pétur er framkvæmdastjóri KSÍ.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tapliðið fær hálfa milljón króna.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Bikarmeistararnir í karlaflokki fara í forkeppni Evrópudeildarinnar á næsta tímabili.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stemning í stúkunni.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

