Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   fös 15. október 2021 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Salah bjartsýnn að Liverpool vinni bikar á þessari leiktíð
Mynd: Getty Images
Mohamed Salah var valinn leikmaður september mánaðar hjá Liverpool.

Hann skoraði sex mörk í fimm leikjum í september en Liverpool er enn ósigrað í deildinni með 15 stig eftir 7 leiki í 2. sæti deildarinnar stigi á eftir Chelsea.

Salah var til viðtals hjá Liverpoolfc.com og þar sagðist hann bjartsýnn á að liðið gæti unnið titla á þessari leiktíð.

„ég reyni alltaf að hjálpa, með því að skora og láta liðið vinna leiki, það er aðalatriðið. Við verðum að gera okkar besta til að vinna eitthvað og ég held að við séum með gæðin í það.

..Við erum með topp lið svo við verðum að gera allt til að reyna vinna eitthvað. Ég er viss um að allir hugsi það. Við verðum að hugsa svona áfram og enda tímabilið með því að vinna bikar."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner