Fotbolti.net
14.10.26 - 19:44
Brynjar Ingi Erluson

Leikmaður Viking kallar Olise hálfvita

Olise sá rautt gegn Viking

Olise sá rautt gegn Viking

Canon

Mynd: EPA

Kristoffer Askildsen, leikmaður Viking í Noregi, kallaði franska landsliðsmanninn Michael Olise hálfvita í viðtali við TV2 eftir 3-3 jafnteflið gegn Bayern München í Meistaradeildinni í gær.
Segir leikmann Viking hafa hagað sér eins og fífl
TENGT EFNI

Segir leikmann Viking hafa hagað sér eins og fífl

Olise fékk tvö gul spjöld með nokkurra sekúndna millibili undir lok leiksins. Fyrst togaði hann í leikmann Viking áður en hann kastaði boltanum í andlitið á Zlatko Tripic, sem lét sig falla í grasið með miklum tilþrifum.

Askildsen var fljótur að hjóla í Olise og láta hann heyra það en Frakkinn virtist þó ekkert láta þetta á sig fá og gaf honum engan gaum. Norðmaðurinn hélt áfram að reyna að fá viðbrögð frá honum en hafði ekkert upp úr krafsinu.

Eftir leikinn hélt Askildsen svo áfram að gera grín að Olise.

„Þegar hann kastaði boltanum hugsaði ég bara með mér: 'Þvílíkur hálfviti!‘,“ sagði Askildsen.

Norðmennirnir gerðu sitt besta til að komast undir skinnið á Bæjurum og tókst það heldur betur. Bayern fór svekkt frá Noregi með aðeins eitt stig í farteskinu.

Amin Cosic, sem lék áður með KR, HK og Njarðvík, er á mála hjá Viking. Hann sat allan tímann á varamannabekknum í gær.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.