Fotbolti.net
14.10.26 - 17:35
Brynjar Ingi Erluson

Nánast eins og Schmeichel væri á launaskrá Man Utd

Peter Schmeichel er gagnrýndur fyrir viðtal sitt við Martínez

Peter Schmeichel er gagnrýndur fyrir viðtal sitt við Martínez

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Athletic gagnrýnir Peter Schmeichel, fyrrum markvörð Manchester United og núverandi sparkspeking hjá CBS, harðlega fyrir hvernig hann tók viðtal við Lisandro Martínez eftir 2-0 tap United gegn Atlético Madríd í Meistaradeild Evrópu í gær.
„Ég ætla ekki að halda kjafti, annars mun ekkert breytast“
TENGT EFNI

„Ég ætla ekki að halda kjafti, annars mun ekkert breytast“

Það var augljóst að Martínez hafði ákveðið að láta allt flakka eftir leikinn gegn Atlético Madríd og var ekkert að skafa utan af hlutunum.

Hann mætti fyrst í viðtal hjá Amazon Prime þar sem hann gagnrýndi Jason Wilcox, yfirmann fótboltamála hjá United, og teymi hans harðlega fyrir metnaðarleysi á félagaskiptamarkaðnum í sumar. Martínez sagði að United væri einfaldlega ekki með nógu sterkan leikmannahóp til að keppa við stærstu liðin.

Gabriel Clarke, reyndur blaðamaður, tók viðtalið og áttaði sig fljótt á því að Martínez var tilbúinn að láta gamminn geisa. Clarke greip tækifærið og spurði hann nánar út í gagnrýnina, meðal annars hvort Michael Carrick hefði ekki fengið nægan stuðning í sumar.

Martínez fékk því tækifæri til að útskýra hvað hann átti við og lét ekkert ósagt.

Skömmu síðar mætti Argentínumaðurinn í annað viðtal, nú hjá CBS, þar sem Schmeichel tók á móti honum. Þess má geta að Schmeichel hefur áður starfað fyrir United og sinnt hlutverki sendiherra félagsins, en það er ekki laust við að það hafi virst hafa áhrif á hvernig hann nálgaðist viðtalið.

Martínez var enn í sama gír og tilbúinn að halda gagnrýninni áfram. Schmeichel virtist hins vegar vilja beina umræðunni að jákvæðari hlutum, en Martínez lét það ekki stöðva sig og hélt áfram að ræða stöðuna hjá félaginu.

Hann sagði meðal annars að hann ætlaði ekki lengur að halda kjafti því ef enginn segði sannleikann myndi ekkert breytast.

Schmeichel virtist á köflum hálfvandræðalegur og það var næstum eins og hann væri enn á launaskrá hjá United og vildi gera sem minnst úr gagnrýni Martínez.

Framleiðendur Golazo-þáttarins hafa eflaust viljað fá meira út úr viðtalinu, sérstaklega þar sem Jamie Carragher, Thierry Henry og Micah Richards voru í settinu ásamt Kate Abdo. Þar var nóg af mönnum sem hefðu líklega ekki hikað við að spyrja Martínez frekar út í þessi ummæli.

Annaðhvort áttaði Schmeichel sig ekki á því hversu stór fréttin var og missti af tækifærinu til að fylgja henni eftir, eða hann vildi einfaldlega ekki ýta undir enn meiri neikvæða umræðu um United.

Tim Spiers hjá Athletic telur að CBS geti lært mikið af þessu viðtali. Hann bendir á hversu mikilvægt það sé fyrir fréttamenn að lesa aðstæður og átta sig á því þegar leikmaður er tilbúinn að opna sig.

Það sé einmitt á slíkum augnablikum sem réttu spurningarnar geti skipt sköpum og þetta viðtal hafi verið gott dæmi um það.

Hægt er að sjá viðtalið hér fyrir neðan.


Lisandro Martínez vildi opna sig en Schmeichel reyndi að loka á það

Lisandro Martínez vildi opna sig en Schmeichel reyndi að loka á það

Canon

Mynd: EPA

Nánast eins og Schmeichel væri á launaskrá Man Utd
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.