Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 16. janúar 2020 11:05
Magnús Már Einarsson
Neville: Williams myndi borða nef andstæðings fyrir sigur
Brandon Williams.
Brandon Williams.
Mynd: Getty Images
Brandon Williams, vinstri bakvörður Manchester United, hefur vakið athygli fyrir frammistöðu sína á tímabilinu.

Hinn 19 ára gamli Williams hefur komið af krafti inn í lið United en hann spilaði allan leikinn í 1-0 sigri á Wolves í enska bikarnum í gær.

Gary Neville, fyrrum leikmaður Manchester United, er aðdáandi Williams.

„Ég kann vel við Brandon Williams," sagði Neville á Twitter í gærkvöldi.

„Það sem ég kann sérstaklega vel við er að hann hefur þannig augnaráð að hann væri tilbúinn að borða nefið á andstæðingi sínum til að vinna leik. Haltu áfram strákur! Oh hann getur spilað fótbolta líka, sem er alltaf bónus."
Athugasemdir
banner
banner
banner