Wolves og West Brom eigast við í nágrannaslag klukkan 12:30 í ensku úrvalsdeildinni en þetta er í fyrsta sinn í níu ár þar sem þessi lið mætast.
Wolves er fyrir leikinn í dag í 14. sæti með 22 stig úr 18 leikjum. West Brom er í 19. sæti með átta stig eftir 17 leiki.
Willy Boly og Adama Traore koma inn í byrjunarlið Úlfana og Robert Snodgrass spilar sinn fyrsta leik fyrir West Brom eftir félagaskipti sín frá West Ham. Markvörðurinn Sam Johnstone er ekki með West Brom í dag.
Hér að neðan má sjá bæði byrjunarlið en leikurinn er sýndur í beinni á Síminn Sport.
Byrjunarlið Wolves: Patricio, Semedo, Coady, Boly, Saiss, Traore, Dendoncker, Moutinho, Neves, Neto, Silva.
(Varamenn: Ruddy, Hoever, Ait-Nouri, Gibbs-White, Vitinha, Cutrone, Shabani, Kilman, Corbeanu)
Byrjunarlið West Brom: Button, O’Shea, Ajayi, Bartley, Gibbs, Livermore, Sawyers, Pereira, Snodgrass, Grosicki, Robinson.
(Varamenn: Lonergan, Furlong, Robson-Kanu, Krovinovic, Edwards, Peltier, Kipre, Field)
Leikir dagsins:
12:30 Wolves - West Brom
15:00 West Ham - Burnley
15:00 Leeds - Brighton
17:30 Fulham - Chelsea
20:00 Leicester - Southampton
Athugasemdir