Fenerbahce í Tyrklandi hefur krækt í sóknarmanninn Bright Osayi-Samuel en þetta staðfesti félagið í gærkvöldi.
Um er að ræða skemmtilegan leikmann sem hefur vakið athygli með Queens Park Rangers í næst efstu deild Englands.
Osayi-Samuel er landsliðsmaður Tansaníu og hittir félaga sinn Mbwana Samatta hjá Fenerbahce en hann er þar í láni frá Aston Villa.
Osayi-Samuel er 23 ára gamall en hann gerði samning við tyrknensku risanna til ársins 2025.
Leikmaðurinn kom til QPR frá Blackpool fyrir fjórum árum og hefur spilað reglulega síðan þá.
Athugasemdir