Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 16. janúar 2022 16:47
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Alfreð snéri aftur í jafntefli gegn Frankfurt
Alfreð Finnbogason er mættur aftur á völlinn
Alfreð Finnbogason er mættur aftur á völlinn
Mynd: Getty Images
Augsburg 1 - 1 Eintracht Frankfurt
0-1 Daichi Kamada ('22 )
1-1 Michael Gregoritsch ('38 )

Íslenski landsliðsmaðurinn Alfreð Finnbogason er mættur aftur á völlinn eftir smávægileg meiðsli en hann spilaði í 1-1 jafntefli Augsburg gegn Eintracht Frankfurt í þýsku deildinni.

Alfreð hefur gengið í gegnum gríðarlega erfið meiðsli síðasta eina og hálfa árið eða svo.

Hann spilaði ekkert í byrjun tímabils en kom til baka í október og lék nokkra leiki fyrir Augsburg áður en hann meiddist aftur.

Alfreð byrjaði að æfa aftur með Augsburg nýlega og var á bekknum í dag en hann fékk síðustu sjö mínútur leiksins.

Daichi Kamada gerði mark Frankfurt á 22. mínútu áður en austurríski framherjinn Michael Gregoritsch jafnaði á 38. mínútu leiksins.

Augsburg er í 16. sæti með 19 stig á meðan Frankfurt er í 8. sæti með 28 stig.

Athugasemdir
banner
banner
banner