Fotbolti.net
16.02.25 - 18:25
Ívan Guðjón Baldursson

England: Tottenham sigraði gegn Man Utd

England: Tottenham sigraði gegn Man Utd
Canon

Mynd: Tottenham

Tottenham 1 - 0 Man Utd
1-0 James Maddison ('13)
Tottenham tók á móti Manchester United í stórleik í neðri hluta ensku úrvalsdeildarinnar. Liðin áttust við í seinni leik dagsins í deildinni og náðu heimamenn í liði Tottenham forystunni snemma leiks.

James Maddison fylgdi þá skoti frá Lucas Bergvall eftir með marki, eftir að André Onana markvörður hafði varið skotið frá Svíanum beint út í vítateiginn.

Staðan var 1-0 í leikhlé eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik þar sem lítið var um færi en bæði lið sýndu flotta takta á köflum.

Síðari hálfleikurinn var opnari heldur en sá fyrri og bauð upp á fína skemmtun, en boltinn rataði þó aldrei í netið þrátt fyrir góð færi. Man Utd fékk betri færi en Guglielmo Vicario stóð sig frábærlega á milli stanganna og klúðraði Alejandro Garnacho dauðafæri með að skjóta yfir.

Niðurstaðan 1-0 sigur Tottenham og er þetta fyrsti heimasigur Tottenham í ensku deildinni síðan 3. nóvember.

Tottenham er í tólfta sæti eftir þennan sigur, þrettán stigum frá Evrópubaráttunni.

Man Utd er einu stigi fyrir neðan Tottenham - með 29 stig eftir 25 umferðir.
England: Tottenham sigraði gegn Man Utd
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.