KA tilkynnti rétt í þessu að félagið hefði selt Ívar Örn Árnason til Breiðabliks. Breiðablik tilkynnti á sama tíma um kaup á Ívari. Fótbolti.net greindi frá tilboði frá Breiðabliki í Ívar á fimmtudag í síðustu viku. Fjallað hefur verið um að kaupverðið sé um 15 milljónir króna, en það er óstaðfest upphæð. Samningur Ívars hefði runnið út eftir komandi tímabil.
Ívar er uppalinn KA maður sem tók við fyrirliðabandinu hjá KA fyrir tímabilið 2025. Hann er örvfættur miðvörður sem verður þrítugur seinna á þessu ári.
Ívar leiddi Akureyrarliðið til bikarmeistaratitils árið 2024 og átti stóran þátt í góðu Evrópugengi liðsins árið á undan. Hann hefur verið lykilmaður í liði KA síðustu tímabil.

Tilkynning KA
Ívar lék alls 181 keppnisleik fyrir KA og var fyrirliði Bikarmeistaraliðs KA 2024 auk þess að taka þátt í því að tryggja sigur í Inkassodeildinni sumarið 2016.
Við óskum Ívari góðs gengis í Kópavoginum og þökkum honum fyrir magnað framlag til félagsins.
Athugasemdir