Það var bikarhelgi í enska boltanum en 32-liða úrslitum lýkur í kvöld með viðureign Macclesfield og Brentford, auk þess sem dregið verður í 16-liða úrslit. En hér er slúðurpakkinn á þessum fína mánudegi!
Það stefnir í að brasilíski varnarmaðurinn Murillo (23) yfirgefi Nottingham Forest í sumar. Chelsea hefur áhuga og Liverpool íhugar einnig að gera tilboð. (TeamTalk)
Napoli hefur hafið viðræður við umboðsmenn Scott McTominay (29) um að framlengja samningi hans til 2030. (Corriere dello Sport)
Manchester City hefur fengið þær upplýsingar að félagið þurfi að borga 60-70 milljónir punda til að fá Morgan Gibbs-White (26) frá Nottingham Forest í sumar. (Football Insider)
Chelsea og Tottenham hafa áhuga á Suður-kóreska miðverðinum Kim Min-jae (29) hjá Bayern München. (BayernInsider)
Fílabeinsstrendingurinn Yan Diomande (19) hjá RB Leipzig hefur verið orðaður við Liverpool Kantmaðurinn ungi segir að Liverpool sé uppáhalds félag föður síns. (Bild)
Vincent Kompany, stjóri Bayern München, vonast til að vinna ensk félög í baráttunni um Diomande í sumar. (Fabrizio Romano)
Everton hyggst gera annað tilboð í Harry Wilson (28) í sumar. Fulham hafnaði tilboði í janúar. (Football Insider)
Manchester United og Arsenal hafa áhuga á bandaríska framherjanum Christian Pulisic (27) hjá AC Milan. Tottenham hefur einnig sýnt áhuga. Þessi fyrrum Chelsea leikmaður ætti að vera falur fyrir 60-70 milljónir punda. (Caught Offside)
Real Madrid íhugar að selja brasilíska sóknarmanninn Endrick (19) þegar hann kemur úr láni frá Lyon. Félög í ensku úrvalsdeildinni hafa áhuga. (Fichajes)
Juventus reynir að fá banfaríska miðjumanninn Weston McKennie (27) til að skrifa undir nýjan samning. Viðræður hafa gengið illa því hann vill tvöfalda laun sín. (Gazzetta dello Sport)
Sandro Tonali (25) fagnaði með Eddie Howe um helgina til að sýna að samband hans við Newcastle er enn sterkt. Arsenal hefur sýnt ítalska miðjumanninum áhuga. (ChronicleLive)
Athugasemdir



