Fotbolti.net
16.02.26 - 17:00
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

David ekki með til Istanbúl

Jonathan David.

Jonathan David.

Canon

Mynd: EPA

Jonathan David, sóknarmaður Juventus, fór ekki með liðinu til Istanbúl þar sem framundan er fyrri leikurinn gegn Galatasaray í umspili Meistaradeildarinnar.

Kanadíski landsliðsmaðurinn, sem kom frá Lille í fyrra, er meiddur á nára en hann hefur byrjað síðustu átta deildarleiki Juventus.
Dusan Vlahovic og Arkadiusz Milik eru einnig fjarverandi í komandi leik svo Lois Openda er eina 'nían' sem er leikfær fyrir Juve í Istanbúl.

David hefur skorað sjö mörk og átt fimm stoðsendingar í 34 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu, þar af tvö í Meistaradeildinni.

Fyrri leikirnir í umspili Meistaradeildarinnar:

þriðjudagur 17. febrúar
17:45 Galatasaray - Juventus
20:00 Benfica - Real Madrid
20:00 Dortmund - Atalanta
20:00 Mónakó - PSG

miðvikudagur 18. febrúar
17:45 Qarabag - Newcastle
20:00 Bodö/Glimt - Inter
20:00 Club Brugge - Atletico Madrid
20:00 Olympiakos - Leverkusen
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.