Macclesfield 0 - 1 Brentford
0-1 Sam Heathcote ('70 , sjálfsmark)
0-1 Sam Heathcote ('70 , sjálfsmark)
Hákon Rafn Valdimarsson var í markinu þegar Brentford heimsótti utandeildarliðið Macclesfield í 32-liða úrslitum enska bikarsins í kvöld.
Macclesfield gerði sér lítið fyrir og vann ríkjandi bikarmeistara Crystal Palace í síðustu umferð.
Leikurinn var mjög rólegur en Brentford náði aðeins einu skoti á markið í fyrri hálfleik og það var rólegt hjá Hákoni hinu megin á vellinum.
Það dró loksins til tíðinda á 70 mínútu þegar Sam Heathcote varð fyrir því óláni að skalla boltann í eigið net og kom Brentford í foystu. Hvorugu liðinu tókst að ógna af einhverju viti eftir það en Brentford náði ekki neinu skoti á markið.
Brentford heimsækir West Ham í 16-liða úrslitum sem fara fram helgina 6.-9. mars.
Athugasemdir




