Chelsea og Liverpool gætu gert tilboð í Murillo - Liverpool og Bayern hafa áhuga á Diomande - Pulisic aftur til Englands?
   mán 16. febrúar 2026 17:18
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Eysteinn svarar eftir pirring landsliðsþjálfarans: Ekki góð staða
Eysteinn Pétur Lárusson er framkvæmdastjóri KSÍ.
Eysteinn Pétur Lárusson er framkvæmdastjóri KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þorsteinn Halldórsson er þjálfari kvennalandsliðsins.
Þorsteinn Halldórsson er þjálfari kvennalandsliðsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kvennalandsliðið kom ekki saman í lok síðasta ár vegna skorts á fjármagni.
Kvennalandsliðið kom ekki saman í lok síðasta ár vegna skorts á fjármagni.
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson var á fréttamannafundi í dag spurður út í þá staðreynd að Ísland spilaði ekki leiki í síðasta landsleikjaglugga. Það var opinber landsleikjagluggi um mánaðamótin nóvember og desember en íslenska landsliðið kom ekki saman í þeim glugga. Ástæðan fyrir því er skortur á fjármagni. Ekki var því hægt að spila vináttuleiki til að undirbúa liðið fyrir útileiki gegn heimsmeisturum Spánar og Evrópumeisturum Englands í undankeppni HM sem spilaðir verða í byrjun næsta mánaðar.

Landsliðsþjálfarinn var ekki hrifinn af spurningum fréttamanns í dag eins og má sjá í tengdri frétt hér beint fyrir neðan.

Fótbolti.net ræddi við Eystein Pétur Lárusson, framkvæmdastjóra KSÍ, í dag.

„Það var ákveðið að sleppa þessu verkefni, það er ekki breyting á svari mínu frá því í nóvember," segir Eysteinn.

„Það þarf að eiga fyrir hlutunum. Svona verkefni kostar alltaf á bilinu 25-30 milljónir, þegar farið er í tvo leiki. Flug og hótel. Það er ástæðan fyrir því að í upphafi þessa árs var ekki gert ráð fyrir verkefni í þessum glugga, ekki frekar en hjá A-landsliði karla í janúar síðastliðnum," hafði Vísir eftir Eysteini í nóvember.

Af hverju er ekki til peningur til að spila leiki í opinberum landsleikjagluggum?

„Við gerum okkar áætlanir og það tekin ákvörðum að fara ekki í þetta verkefni og landsliðsþjálfaranum tilkynnt það. Það er alveg rétt hjá Steina að vísa á okkur. Fjárhagslegar ástæður liggja að baki."

Í svari þínu við fyrirspurn Vísis nefnir þú þetta í sömu setningu og vináttuverkefni A-karla sem hefði verið í janúar utan landsleikjaglugga, finnst þér það sanngjarnt?

„Við metum kostnað hverju sinni. Núna hjá A-karla erum við að fara í boðsferð, engin kostnaður. Auðvitað er hvert verkefni metið með tilliti til þess. Hvert verkefni kostar ákveðið. Við viljum spila þessa leiki og hvert verkefni kostar og það var ákveðið að taka þetta verkefni út."

Getur þú eitthvað upplýst hvernig viðbrögð landsliðsþjálfarans voru við því?

„Auðvitað vill hann spila sem flesta leiki, það er alveg ljóst, en hann skildi þetta á þeim tíma. Að sjálfsögðu vill hann spila sem flesta leiki og fá sem flest verkefni. Það er hans hlutverk að hafa aðhald á okkur og ýta sínu áfram. Þetta var niðurstaðan á þeim tíma."

Hvað finnst þér um að geta ekki tekið þátt í opinberum landsleikjaglugga?

„Okkur finnst það ekki góð staða. Ég held að það sé öllum ljóst að það er ekki góð staða. Það hefur ekkert farið framhjá þeim sem hafa áhuga á fótbolta að við þurfum stöðugt að vera með aðhald á rekstrinum. Við erum að velja og hafna verkefnum. Það er bara staðan, þú þarft að eiga fyrir því sem þú ert að gera og það kemur margt til. Við erum t.d. með miklu lægri styrki frá hinu opinbera heldur en gerist í kringum okkur. Það er ein ástæðan. Við verðum að reka knattspyrnusambandið af ábyrgð, eiga fyrir því sem við erum að gera, þetta snýst bara um það. Þegar við tókum ákvörðun um þennan landsleikjaglugga var svo sem ekki komið í ljós hvernig niðurstaða ársins yrði, en það er orðið ljóst núna og eins og ég sagði í útvarpsþættinum er gert ráð fyrir hagnaði árið 2025 sem er mjög jákvætt."

Er stefnan að þetta gerist ekki aftur?

„Að sjálfsögðu verðum við að vona það að við getum farið í sem flest verkefni. En það liggur samt alveg fyrir að við erum að hagræða og það eru aðeins færri verkefni sem farið er í. Við metum auðvitað alltaf hvernig staðan er á hverjum tíma. En eins og áætlanir fyrir næsta ár liggja þá eru A-karla og A-kvenna með mótsleiki. Karlamegin erum við í æfingaleikjum og eins og flestir vita þá fáum við tilboð um að koma og spila gegn því að greiða ekki neinn kostnað og jafnvel hafa eitthvað út úr því. Við þurfum t.d. að skila alltaf ákveðið mörgum leikjum karlamegin út frá samningum."

Væri hjálplegt ef ríkið myndi styrkja betur við íþrótta og afreksstarf?

„Það er bara spurning um fjármagn almennt. 75-80% af tekjum sambandsins koma frá UEFA og FIFA. Við höfum átt samtöl við sambönd sem eru af okkar stærðargráðu, ferðakostnaður okkar er meiri. Ef við höldum mót hér á landi í yngri landsliðum þá er það hellings kostnaður fyrir okkur. Við erum stundum að vonast eftir því að fá ekki þessi mót hingað - sem er heldur ekki gott því við viljum auðvitað spila á heimavelli. Sérstaklega eftir að við erum komin með góðan og nýjan völl í Laugardalnum. Við þurfum að meta hvert verkefni fyrir sig."

„Við erum í lægri kantinum hvað varðar stuðning frá hinu opinbera til sambandsins miðað við aðrar þjóðir."

„Sérstaklega í yngri landsliðunum erum við að spila færri leiki en þjóðirnar í kringum okkur, en hversu sanngjarn sá samanburður er veit ég ekki. Við höfum bara ákveðna púllíu og við sem knattspyrnuhreyfing þurfum almennt að ræða um hvar við viljum hafa fókusinn og áherslurnar. Þetta er eitt af því sem þyrfti að ræða á komandi þingi á Egilsstöðum."

„Að sjálfsögðu viljum við spila í öllum gluggum, svona verkefni kostar ákveðið og það er markmiðið að skila ekki taprekstri hjá sambandinu. En við verðum líka að geta haldið áfram að spila þessa leiki og undirbúa okkur sem best fyrir keppnisleikina því að það að liðin okkar komist á stórmót er það sem mun gefa okkur til framtíðar og efla sambandið enn frekar. Sem betur fer eru fjárhæðirnar kvennamegin alltaf að hækka og Evrópumótið kom vel út fjárhagslega síðasta sumar. Hreyfingin nýtur góðs af því ef liðin okkar komast á stórmót sem og þegar okkar liðum gengur vel í Evrópukeppnum,"
segir Eysteinn að lokum.
Útvarpsþátturinn - Farið yfir sviðið með Eysteini
Athugasemdir
banner
banner