Chelsea og Liverpool gætu gert tilboð í Murillo - Liverpool og Bayern hafa áhuga á Diomande - Pulisic aftur til Englands?
   mán 16. febrúar 2026 17:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Grímsi: Hef engar áhyggjur af okkur þó útlitið sé ekki endilega gott út á við
'Svo mætti Víkingur og þá voru menn 100% klárir og því fylgdi þessi frammistaða í gær'
'Svo mætti Víkingur og þá voru menn 100% klárir og því fylgdi þessi frammistaða í gær'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Auðvitað er þetta blóðtaka - en ég hef svo sem engar áhyggjur af því'
'Auðvitað er þetta blóðtaka - en ég hef svo sem engar áhyggjur af því'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ívar var í dag kynntur sem nýr leikmaður Breiðabliks.
Ívar var í dag kynntur sem nýr leikmaður Breiðabliks.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Mér finnst við samt á betri stað en á sama tíma í fyrra þó að hópurinn sé aðeins þynnri.'
'Mér finnst við samt á betri stað en á sama tíma í fyrra þó að hópurinn sé aðeins þynnri.'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Þarna fór ég í póker við markmanninn og tapaði.'
'Þarna fór ég í póker við markmanninn og tapaði.'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Það er alltaf vont að missa fyrirliðann sinn, það segir sig sjálft'
'Það er alltaf vont að missa fyrirliðann sinn, það segir sig sjálft'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Það er alltaf smá bónus að skora úr aukaspyrnum - það er einhver extra tilfinning.'
'Það er alltaf smá bónus að skora úr aukaspyrnum - það er einhver extra tilfinning.'
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
„Þetta var fínasta frammistaða í gær, mér fannst við samt aðeins gefa eftir að við urðum manni fleiri. Heilt yfir var þetta allavega okkar langbesti leikur í vetur. Mér fannst við geta spilað boltanum aðeins betur á köflum, en það er erfitt í Boganum," segir Hallgrímur Mar Steingrímsson, leikmaður KA, við Fótbolta.net.

Liðið vann 2-0 sigur á Íslandsmeisturum Víkings í Lengjubikarnum í gær.

Ekki gott undirlag í Boganum
Hallgrímur var spurður út í muninn á Boganum og Greifavellinum, heimavelli KA. Er skrítið að fara þar á milli?

„Það er mjög skrítið. KA-völlurinn er miklu mýkri og betra gras. Svo mætir maður í Bogann á glerharðan völl og ekki geggjað gras - slit í honum alls staðar. Aðalmunurinn er samt undirlagið, það er miklu harðara í Boganum og það er ekki gott að skipta á milli. Ég finn ekki mikið fyrir því en þeir sem finna mest fyrir því, tala um að daginn eftir æfingar í Boganum þá eru þeir slæmir í ökklum, skrokknum og bakinu. Þetta er ekki gott undirlag," segir Hallgrímur.

Samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net fóru Víkingarnir Gylfi Þór Sigurðsson, Oliver Ekroth, Valdimar Þór Ingimundarson og Gunnar Vatnhamar ekki með í leikinn vegna undirlagsins í Boganum.

Hefur Hallgrímur einhvern tímann verið stressaður að meiðast í Boganum?

„Nei, í rauninni ekki. Ég gleymi öllu þegar ég er að spila fótbolta. Einhvern tímann kannski fyrir æfingar, en þegar ég byrja að skokka þá gleymi ég öllu og pæli ekkert í því."

Smá bónus að skora úr aukaspyrnu
Hallgrímur skoraði fyrra mark KA í gær, mark beint úr aukaspyrnu í lok fyrri hálfleiks.

„Ég er ánægður með öll mörk. Það er skemmtilegra að skora á móti betri liðunum, sama hvenær það er. Það er alltaf smá bónus að skora úr aukaspyrnum - það er einhver extra tilfinning. Ég var mjög ánægður með þetta, spyrnan var ekki í verra laginu."

Brjálaður eftir vítaklikkið - Tapaði í póker
Til samanburðar, af því það gerist í Lengjubikarnum, var jafn pirrandi og þetta var ánægjulegt að klikka á vítaspyrnunni á móti KR?

„Já eiginlega. Ég var mjög pirraður við sjálfan mig í því augnabliki. Ég var búinn að ákveða að skjóta í hitt hornið, en í aðhlaupinu ákvað ég að skipta yfir - og það er aldrei gott. Ég var brjálaður við sjálfan mig eftir það. Það er auðvitað mikilvægara á tímabilinu að skora, en það er alltaf hræðilegt að klúðra vítum, sama hvenær það er."

Halldór Snær Georgsson í marki KR varði vítaspyrnu Hallgríms á Greifavellinum í lok janúar og sá til þess að KR héldi forystu þegar skammt var til leiksloka. Er eitthvað sem lætur þig skipta um ákvörðun á leiðinni að boltanum?

„Maður er alltaf að pæla, maður á alltaf að halda sig við það sem maður ætlar að gera, en svo þarna fór ég í póker við markmanninn og tapaði. Maður á ekki að gera það. Kannski hefði ég ekki gert það ef þetta hefði verið á tímabilinu - ég veit það ekki. Ég tippaði á að hann myndi fara í hitt hornið, en hann auðvitað vissi að ég myndi skjóta í þetta horn því ég geri það yfirleitt. Þó að markmenn fara í þetta horn, þá á ég að ná boltanum nógu langt í hornið svo ég skori - ég er vanur því."

Betra hugarfar gegn Víkingi
Hallgrímur talaði um langbestu frammistöðuna á tímabilinu. Fyrir það hafði KA tapað gegn ÍR og KR í Lengjubikarnum.

„Þetta er klárlega innspýting fyrir okkur. KR-leikurinn er ekki endilega marktækur finnst mér því þeir voru komnir lengra en við á undirbúningstímabilinu. Ég held þeir hafi byrjað töluvert fyrr að æfa en við, voru í betra standi og við búnir að spila færri góða (alvöru) leiki fram að því. Svo fannst mér við bara sjokkerandi hugarfarslega séð á móti ÍR. Þá fannst mér greinilegt að þetta væri 1. deildar lið í Lengjubikar í febrúar. Ég var þar meðtalinn - þótt maður eigi ekki að gera það. Svo mætti Víkingur og þá voru menn 100% klárir og því fylgdi þessi frammistaða í gær."

Hefur engar áhyggjur þó að þetta líti ekki endilega vel út út á við
Hvernig líður þér með stöðuna á KA í dag?

„Það er alveg spurningarmerki. Ívar er að fara og okkur vantar hafsent. Svo vantar okkur aðeins framávið, sérstaklega upp á breiddina að gera. Það er ekkert launungarmál að okkur vantar níu. Mér finnst við samt á betri stað en á sama tíma í fyrra þó að hópurinn sé aðeins þynnri. Ég hef mikla trú á strákunum sem eru í liðinu. Mér finnst ungu strákarnir orðnir töluvert sterkari en í fyrra. Við erum með góðan hóp þó að hann sé ekki breiður. Ég hef engar áhyggjur af okkur þó að þetta líti ekki endilega vel út út á við af því það eru svo margir farnir og fáir, þannig séð, komnir í staðinn."

Alltaf vont að missa fyrirliðann
Varðandi týpuna, fyrirliðinn Ívar Örn Árnason er að fara, er það áhyggjuefni?

„Það er alltaf vont að missa fyrirliðann sinn, það segir sig sjálft. Hann er búinn að vera góður í klefanum og partur af hópnum í mörg ár. Þetta er bara fótbolti og við þurfum að finna mann í staðinn. Það er einhver sem stígur upp í hans hlutverk, það er gott fyrir næsta mann innan hópsins að stíga upp og taka stærra hlutverk - hver sem það verður. Auðvitað er þetta blóðtaka - en ég hef svo sem engar áhyggjur af því."

Í betra standi en í fyrra
Hæg byrjun á tímabilinu hjá KA síðustu ár hefur talsvert verið á milli tannanna á þeim sem fylgjast með Bestu deildinni. Hallgrímur var til viðtals í Gula Spjaldinu á dögunum og sagði þar að honum hafi KA ekki mæta í nægilega góðu standi til leiks í Bestu deildina síðustu ár.

Það eru heilt yfir færri meiðsli hjá KA á þessum tímapunkti samanborið við í fyrra. Ásgeir Sigurgeirsson er þó meiddur og bróðir Hallgríms, Hrannar Björn, sleit hásin á dögunum.

„Það voru mörg minniháttar meiðsli í fyrra, menn voru alltaf að detta út. Ef einhver kom til baka þá meiddist einhver annar í 3-4 vikur. Núna er engin vöðvameiðsli. Standið á hópnum er betra og vonandi helst það, því við megum ekki við mörgum skakkaföllum."

Finnst þér þið hafa æft betur miðað við á þessum tímapunkti í fyrra?

„Við erum búnir að æfa aðeins betur en í fyrra finnst mér. Svo snýst þetta líka um hvað þú gerir við þinn eigin líkama - hvernig þú hugsar um hann. Síðan getur líka vel verið að það séu tilviljanir að menn séu að lenda í minniháttar meiðslum en verða svo lausir við þau," segir Hallgrímur.
Athugasemdir
banner
banner