Sjáðu mörkin: FH hafði betur gegn Stjörnunni í Lengjubikar kvenna

Berglind Freyja Hlynsdóttir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Berglind Freyja Hlynsdóttir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan 1 - 3 FH
0-1 Berglind Freyja Hlynsdóttir ('16 )
1-1 Snædís María Jörundsdóttir ('28 )
1-2 Hildur Katrín Snorradóttir ('37 )
1-3 Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir ('61 )
0-1 Berglind Freyja Hlynsdóttir ('16 )
1-1 Snædís María Jörundsdóttir ('28 )
1-2 Hildur Katrín Snorradóttir ('37 )
1-3 Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir ('61 )
Stjarnan og FH mættust í riðli eitt í A-deild Lengjubikars kvenna í kvöld.
Berglind Freyja Hlynsdóttir kom FH yfir eftir stundafjórðung en Snædís María Jörundsdóttir jafnaði metin. Hildur Katrín Snorradóttir sá til þess að FH var með forystuna í hálfleik.
Það var síðan Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir sem innsiglaði sigur FH.
FH er með þrjú stig en þetta var fyrsti leikur liðsins í keppninni. Stjarnan er einnig með þrjú stig eftir sigur á Þór/KA í sínum fyrsta leik.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Þróttur R. | 5 | +10 | 12 |
| 2 | Stjarnan | 5 | +17 | 10 |
| 3 | Þór/KA | 5 | +8 | 9 |
| 4 | Grindavík/Njarðvík | 5 | +2 | 7 |
| 5 | FH | 5 | +8 | 6 |
| 6 | FHL | 5 | -45 | 0 |