Fotbolti.net
16.02.26 - 22:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Spánn: Yamal klikkaði á vítaspyrnu í tapi

Spánn: Yamal klikkaði á vítaspyrnu í tapi
Canon

Mynd: EPA

Girona 2 - 1 Barcelona
0-0 Lamine Yamal ('45 , Misnotað víti)
0-1 Pau Cubarsi ('59 )
1-1 Thomas Lemar ('62 )
2-1 Fran Beltran ('87 )
Rautt spjald: Joel Roca, Girona ('90)
Barcelona féll úr leik í spænska bikarnum eftir 4-0 tap gegn Atletico Madrid í síðustu viku. Þá missti Barcelona toppsætið í spænsku deildiinni til Real Madrid eftir tap gegn Girona í kvöld.

Lamine Yamal fékk tækifæri til að koma Barcelona yfir í uppbótatíma fyrri hálfleiks en skaut í stöngina úr vítaspyrnu.

Pau Cubarsi kom Barcelona yfir eftir klukkutíma leik en Thomas Lemar jafnaði metin stuttu síðar. Þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma tryggði Fran Beltran sigur Girona.

Joel Roca, leikmaður Girona, fékk að líta rauða spjaldið í blálokin fyrir brot á Yamal en það kom ekki að sök þar sem sigur Girona var staðreynd.

Barcelona er í 2. sæti með 58 stig, tveimur stigum á eftir Real Madrid. Girona er í 12. sæti með 29 stig.

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona10+2927
2Atletico Madrid10+1225
3Real Madrid10+1524
4Betis10+220
5Real Sociedad10+119
6Sevilla9-214
7Alaves10+312
8Celta10+312
9Athletic9+312
10Villarreal10+112
11Deportivo10011
12Osasuna9-811
13Racing Santander10-1111
14Levante10-310
15Elche10-310
16Vallecano9-89
17Getafe10-109
18Espanyol10-28
19Valencia10-106
20Malaga10-125
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.