16.04.15 - 16:07
Magnús Már Einarsson
Balázs Tóth í Þór (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þórsarar hafa samið við reyndan ungverskan varnarmann að nafni Balázs Tóth. Hinn 35 ára gamli Balázs var á reynslu hjá Þór á dögunum þegar liðið var í æfingabúðum á Spáni.
Balázs hefur lengst af leikið í heimalandi sínu en hann hefur undanfarin ár verið á mála hjá Puskás FC. 2009 og 2010 spilaði Tóth einnig með Al-Oruba SC í Óman.
,,Ég er gríðarlega ánægður með að fá Baszi í okkar sterka hóp,\" sagði Halldór Jón Sigurðsson, Donni, þjálfari Þórs.
,,Hann kemur inn með mjög mikla reynslu úr ungversku úrvalsdeildinni og ég er sannfærður um að hann muni hjálpa okkur mikið í sumar. Hann var með okkur í æfingaferðinni á Spáni og stóð sig vel á æfingunum og leiknum. Við væntum mikils af honum í sumar.\"
Þórsarar hafa verið í leit að miðverði en Atli Jens Albertsson og Orri Freyr Hjaltalín eru farnir í Magna Grenivík og Hlynur Atli Magnússon fór til Noregs. Varnarmaðurinn Loftur Páll Eiríksson kom frá Tindastóli fyrr í vetur og nú hefur Balázs bæst í hópinn. Möguleiki er á að Þór fái frekari liðsstyrk fyrir fyrsta leik í 1. deildinni gegn Þrótti 9. maí.
,,Við erum með tvo leikmenn í deiglunni en það eru flottir leikmenn sem styrkja hópinn og auka breiddina og jákvæða samkeppni sem er mikilvægt fyrir okkur. Annars er hópurinn okkar sterkur og við virkilega ánægðir með alla okkar leikmenn,\" sagði Donni.