Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 16. apríl 2021 19:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Championship: Lánsmaður frá Liverpool hetjan gegn liði Rooney
Harvey Elliott.
Harvey Elliott.
Mynd: Getty Images
Derby County er í hættu á að falla úr Championship-deildinni á Englandi.

Lærisveinar Wayne Rooney tóku forystuna gegn Blackburn í dag en þurftu að lokum að sætta sig við 2-1 tap. Harvey Elliott, lánsmaður frá Liverpool, skoraði sigurmark Blackburn í leiknum.

Derby er í 21. sæti - síðasta örugga sætinu - með fjórum stigum meira en Rotherham sem á tvo leiki til góða. Derby á eftir að spila fimm leiki en Rotherham sjö. Blackburn kom sér upp í 14. sæti deildarinnar með þessum sigri.

Í hinum leiknum sem var að klárast hafði Cardiff betur gegn Reading. Kieffer Moore skoraði eina mark leiksins af vítapunktinum á 87. mínútu.

Cardiff er í áttunda sæti með 62 stig en Reading er í sjöunda sæti með 66 stig, fimm stigum frá umspilinu. Þetta er því grátlegt tap fyrir Reading.

Blackburn 2 - 1 Derby County
0-1 Tom Lawrence ('22 )
1-1 Sam Gallagher ('42 )
2-1 Harvey Elliott ('66 )

Reading 0 - 1 Cardiff City
0-1 Kieffer Moore ('87 , víti)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner