Fotbolti.net
20.06.26 - 15:14
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Almiron baðst afsökunar - „Stoltur að vera hluti af þessu liði"

Almiron baðst afsökunar - „Stoltur að vera hluti af þessu liði"
Canon

Mynd: EPA

Miguel Almiron, leikmaður Paragvæ, hefur beiðið samherja sína afsökunar á að hafa látið reka sig af velli í 1-0 sigri liðsins á Tyrkjum í nótt.

Almiron fékk rautt spjald fyrir að halda fyrir munninn þegar hann sagði eitthvað við Tyrkjann Mert Muldur. Það eru nýjar reglur sem segja til um að dómarar eigi að gefa leikmanni rautt spjald fyrir að halda fyrir munninn í deilum við mótherja.
Gustavo Alfaro, landsliðsþjálfari Paragvæ, segir að Almiron hafi beðið samherja sína afsökunar.

„Þetta er rautt spjald samkvæmt lögum. Það er ekkert sem ég get gert í því, við getum ekki sagt neitt. Hann bað leikmennina afsökunar á mistökunum sínum. Hann vissi hvaða stöðu hann væri að setja samherja sína í með gjörðum sínum," sagði Alfaro.

Þá skrifaði hann þeim skilaboð á Instagram.

„Ég vil þakka samherjum mínum fyrir framlag sitt. Það fylgir því stolt að vera hluti af þessu liði," skrifaði Almiron.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.