Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 16. apríl 2021 06:00
Aksentije Milisic
Landsliðsmarkvörður Indlands í Hamar (Staðfest)
Mynd: Alberto Larrea
Aditi Chauhan, landsliðsmarkvörður kvennalandsliðs Indlands, hefur skrifað undir samning hjá Hamar frá Hveragerði.

Aditi er 28 ára gömul og hefur spilað á m.a. með West Ham United. Hún kemur frá Gokulum Kerala og varð hún Indlandsmeistari með liðinu á síðasta ári.

Ljóst er að Aditi mun styrkja lið Hamars mikið en í tilkynningu frá félaginu á Facebook kemur eftirfarandi fram:

„Hamar hefur hefur fengið gríðarlega sterkan liðstyrk í kvennalið félagsins fyrir komandi tímabil. Aditi Chauhan sem er landsliðsmarkvörður Indlands mun spila með okkur í sumar. Aditi er 28 ára markvörður sem spilaði með West Ham á árunum 2015-2018. Hún spilaði svo með Gokulum Kerala í fyrra og varð Indlandsmeistari með liðinu. Aditi er frábær viðbót í okkar flotta lið sem var stofnað í fyrra og áttu geggjað fyrsta tímabil. Aditi hefur afrekað mikið á sínum ferli, bæði innann sem og utan vallar og er gríðarlega vinsæl í Indlandi. 👊
Við erum í skýjunum að fá þessa flottu stelpu í hópin okkar og erum við viss um að hún muni gefa af sér og efla ungar og efnilegar knattspyrnustúlkur í Hveragerði."

Athugasemdir
banner
banner