Gianni Infantino forseti FIFA segir það klárt að Íran verði með á HM en þátttaka liðsins á mótinu hefur verið í vafa vegna átakana við Bandaríkin og Ísrael.
Ríkin sömdu á dögunum um tveggja vikna vopnahlé og viðræður eru um að framlengja það.
„Íranska liðið er klárlega að koma á mótið, við vonum auðvitað að þá verði allt friðsælt," segir Infantino.
Ríkin sömdu á dögunum um tveggja vikna vopnahlé og viðræður eru um að framlengja það.
„Íranska liðið er klárlega að koma á mótið, við vonum auðvitað að þá verði allt friðsælt," segir Infantino.
Heimsmeistarakeppnin verður haldin í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada. Íran er í G-riðli með Belgíu, Egyptalandi og Nýja Sjálandi. Liðið spilar tvo leiki í Los Angeles og einn í Seattle.



