Liverpool hefur áhuga á Senesi, Gordon og Ndiaye - City fylgist með Read - Mourinho orðaður við Newcastle
   fim 16. apríl 2026 13:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
KR kallar Sigurpál til baka
Sigurpáll Sören
Sigurpáll Sören
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Freyr
Arnar Freyr
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
KR hefur kallað markvörðinn Sigurpál Sören Ingólfsson til baka úr láni frá Ægi.

Hann var lánaður fyrr í vetur en eftir að Arnar Freyr Ólafsson meiddist gegn Keflavík í fyrstu umferð Bestu deildarinnar var ákveðið að kalla Sigurpál til baka.

KR er nú með þá Halldór Snæ Georgsson og Sigurpál, markverði á meistaraflokksaldri, til taks fyrir leikinn gegn Þór í 2. umferð deildarinnar á morgun.

Arnar Freyr sleit sin í hné og verður frá næstu fjóra mánuðina.

Sigurpáll er fæddur 2003 og á að baki þrjá mótsleiki með KR; tvo í Bestu deildinni 2024 og bikarleik á síðasta tímabili. Hann hafði varið mark Ægis í þremur leikjum í Lengjubikar og tveimur leikjum í Mjólkurbikarnum.

Ægir er ennþá með tvo markverði, þá Ómar Castaldo Einarsson og Bandaríkjamanninn Gabriel Michael Thull.
Slapp
banner
banner