Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 16. maí 2019 16:00
Elvar Geir Magnússon
Lampard: Einn af hápunktum mínum í boltanum
Frank Lampard.
Frank Lampard.
Mynd: Getty Images
Frank Lampard segir að það sé einn af hápunktum sínum í fótboltanum að hafa náð að koma Derby í úrslitaleik umspilsins í Championship-deildinni.

Derby lagði Leeds í undanúrslitum umspilsins.

„Þegar ég skoða persónuleg afrek þá er þetta alveg í efsta flokki. Það voru liðssigrar sem ég vann með Chelsea en tilfinningin núna er eins og eftir stærstu sigrana," segir Lampard.

„Þetta hefur verið magnað ferðalag og mínir menn eru hetjur að standa í þessum sporum sem þeir eru í núna."

Talað er um Lampard sem framtíðarstjóra Chelsea en þegar eru komnar í gang sögusagnir um að hann gæti tekið við hjá sínu fyrrum félagi í sumar.

Derby mun mæta Aston Villa í úrslitaleik á Wembley um sæti í úrvalsdeildinni. Leikurinn verður 27. maí.
Athugasemdir
banner
banner