Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 16. maí 2021 17:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Alisson grét í leikslok - „Vona að pabbi hafi séð þetta"
Mynd: Getty Images
Það gerist ekki oft að markverðir skora en þegar þeir gera það, þá eru það oftast mikilvæg mörk.

Það var þannig í tilfelli Alisson, markvarðar Liverpool, í dag þegar hann skoraði sigurmark gegn West Brom.

Markið er mjög þýðingarmikið í Meistaradeildarbaráttunni þar sem Liverpool er núna einu stigi frá Meistaradeildarsæti þegar tvær umferðir eru eftir.

Alisson grét í leikslok og í viðtali eftir leikinn talaði hann um föður sinn. Jose Becker, faðir Alisson, lést í febrúar. Hinn 57 ára gamli Jose fór að synda nálægt sumarhúsi sínu í RIncao do Inferno en hann drukknaði.

„Ég hef spilað fótbolta frá því ég man eftir mér með föður mínum. Ég vona að pabbi hafi séð þetta. Ég er viss um að hann er að fagna með guð sér við hlið," sagði Alisson eftir sigurinn í dag.

„Ég gæti ekki verið ánægðari en ég er núna."


Athugasemdir
banner
banner