Fotbolti.net
16.05.26 - 17:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Alonso skrifar undir fjögurra ára samning við Chelsea

Alonso skrifar undir fjögurra ára samning við Chelsea
Canon

Mynd: EPA

Chelsea og Xabi Alonso hafa náð samkomulagi um að Spánverjinn verði næsti stjóri liðsins. David Ornstein hjá The Athletic greinir frá þessu.

Alonso fundaði með Chelsea í síðustu viku og hefur samþykkt fjögurra ára samning við félagið. Chelsea mun staðfesta frengirnar fljótlega.
The Athletic greindi frá því að Andoni Iraola hafi einnig komið til greina en Alonso var alltaf fyrsti kostur.

Alonso hefur verið atvinnulaus síðan hann var rekinn frá Real Madrid í janúar. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við spænska félagið síðasta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.