Newcastle búið að setja verðmiða á Gordon - Barcola og Diomande orðaðir við Liverpool - Camavinga til Tottenham?
   lau 16. maí 2026 16:06
Brynjar Ingi Erluson
Man City er enskur bikarmeistari 2026
Antoine Semenyo fagnar sigurmarkinu á Wembley
Antoine Semenyo fagnar sigurmarkinu á Wembley
Mynd: EPA
Chelsea 0 - 1 Manchester City
0-1 Antoine Semenyo ('72 )

Manchester City er enskur bikarmeistari í áttunda sinn í sögu félagsins eftir að hafa unnið Chelsea, 1-0, á Wembley í dag.

City-menn voru ógnandi í byrjun fyrri hálfleiks en náðu þó ekki að reyna mikið á Robert Sanchez í markinu.

Erling Braut Haaland setti boltann í netið á 27. mínútu en markið var dæmt af vegna rangstöðu á Matheus Nunes í aðdragandanum.

Chelsea-menn vildu fá vítaspyrnu undir lok hálfleiksin er Joao Pedro féll í baráttu sinni við Abdukodir Khusanov, en ekkert dæmt á það og var staðan markalaus í hálfleik.

Í þeim síðari komu City menn sterkir til leiks. Semenyo skallaði boltanum yfir úr dauðafæri.

Bæði lið kölluðu eftir nokkrum vítaspyrnum í síðari hálfleiknum en fengu ekki góðar undirtektir frá dómara leiksins.

Semenyo sem hafði verið mjög öflugur í sóknarleiknum skoraði sigurmarkið á 72. mínútu með sturlaðri hælspyrnu eftir sendingu frá Erling Haaland.

Gullfallegt mark og mikilvægt var það því það tryggði Man City bikarmeistaratitilinn. Bikartvenna hjá City-mönnum sem gætu fullkomnað þrennuna ef þeir vinna titilbaráttuna við Arsenal, en City er tveimur stigum á eftir Arsenal þegar tvær umferðir eru eftir.


Slapp
banner