Fotbolti.net
16.05.26 - 13:05
Brynjar Ingi Erluson

Byrjunarliðin í úrslitaleik enska bikarsins: James og Sanchez byrja - Rodri mættur aftur

Rodri er klár í að byrja gegn Chelsea

Rodri er klár í að byrja gegn Chelsea

Canon

Mynd: EPA

Chelsea og Manchester City mætast í úrslitum enska bikarsins klukkan 14:00 á Wembley í dag.
Man City á möguleika á að taka bikartvennuna í ár en liðið varð deildabikarmeistari í mars þegar liðið vann erkifjendur þeirra í Arsenal, 2-0.

Guardiola getur þá unnið tuttugusta titilinn með Man City síðan hann tók við liðinu árið 2016.

Erling Braut Haaland, Antoine Semenyo, Rodri og Bernardo Silva eru allir í liði Man City. James Trafford er í markinu, en hann hefur byrjað alla leiki liðsins í bikarkeppninni.

Calum McFarlane, bráðabirgðastjóri Chelsea, mætir með hörkulið, en Robert Sanchez er í markinu og þá eru Levi Colwill, Jorrel Hato og Wesley Fofana allir í vörninni. Enzo Fernandez, Cole Palmer og Joao Pedro byrja allir.

Chelsea: Sanchez; Fofana, Colwill, Hato, Gusto, James, Caicedo, Cucurella; Fernandez, Palmer, Joao Pedro.

Man City: Trafford, Nunes, Khusanov, Guéhi, O’Reilly, Rodri, Bernardo, Semenyo, Marmoush, Doku, Haaland.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.