Newcastle búið að setja verðmiða á Gordon - Barcola og Diomande orðaðir við Liverpool - Camavinga til Tottenham?
   lau 16. maí 2026 18:07
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Drátturinn í Mjólkurbikar kvenna: Reykjavíkurslagur í Laugardal
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Búið er að draga í 8-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna. Þetta eru söguleg 8-liða úrslit í ljósi þess að stórveldin Valur og Breiðablik eru dottin út.

Það eru þrír Bestu deildarslagir en FHL er eina liðið fyrir utan Bestu deildina sem eftir er í keppninni. Fram fer austur.

Þróttur, sem sló Breiðablik úr leik á heimavelli í dag, fær annan heimaleik en Víkingur kemur í heimsókn. Þá mætast Grindavík/Njarðvík og Stjarnan og ÍBV og FH.

Leikirnir fara fram fimmtudaginn 18. júní og föstudaginn 19. júní.

8-liða úrslitin

Grindavík/Njarðvík - Stjarnan
ÍBV - FH
Þróttur R. - Víkingur R.
FHL - Fram
Slapp
banner
banner