16.05.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson

England í dag - Chelsea og City mætast í úrslitaleiknum

Pep Guardiola og Erling Haaland fögnuðu dátt eftir sigur í úrslitaleik FA bikarsins 2023.

Mynd: EPA

Chelsea og Manchester City eigast við í eina leik dagsins í enska boltanum þar sem allt er undir.
Liðin mætast í úrslitaleik enska bikarsins en þetta er fjórða árið í röð sem Man City fer í úrslitaleikinn. Þetta er í sjötta sinn á tíu árum sem Chelsea fer í úrslitaleik bikarsins og af þessum skiptum hefur félagið aðeins einu sinni staðið uppi sem sigurvegari.
City tapaði gegn Crystal Palace í fyrra og Manchester United þar á undan, eftir að hafa sigrað Rauðu djöflana í úrslitaleiknum 2023.
Chelsea hefur farið nokkuð þægilega leið í úrslitaleikinn þar sem erfiðasta áskorunin var gegn Leeds í undanúrslitum, en fram að því höfðu þeir bláklæddu ekki mætt einu einasta liði úr úrvalsdeildinni.
City sló aftur á móti Newcastle og Liverpool úr leik áður en liðið mætti óvænt Southampton í undanúrslitum.
Úrslitaleikur FA bikarsins 2026
14:00 Chelsea - Man City